Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Hamingjan..

Það er svo dásamlegt þegar fólk finnur sína réttu leið í lífinu! Ég á vin sem hefur fundið sína leið og það er svo frábært að heyra hvað allt breytist við það og verður skemmtilegt og spennandi. Klárt mál að flestum tekst þetta einhvern tíman á lífsleiðinni - það bara hlýtur að vera þar sem lífið er til þess að njóta þess!

...mikilvægast er að treysta á sjálfan sig og fylgja sínu innsæi, hvað öðrum finnst á ekki að skipta máli ef þú finnur hamingjuna lesandi góður, verða þeir sem í kringum þig eru að reyna að samgleðjast í stað þess að finna hnökra ef þá er að finna.. Rétta leiðin finnst ekki nema með því að feta ótroðnar slóðir. Það þýðir ekki að sitja heima í sófa og bíða eftir næsta sjónvarpsþætti eða fréttablaði og athuga hvort þar sé leiðarvísir - ó nei.. láta vaða!!!

Já gott fólk, þetta var hugmynd að því hvernig finna skal réttu leiðina í lífinu.

Góðar stundir..;-)

föstudagur, nóvember 10, 2006

Ísland eða Rokland??

Nei maður spyr sig eins og sannur íslendingur sem veltir fyrir sér veðrinu.. ég held svei mér þá að skerið okkar sé að reyna rífa sig upp með rótum af jarðkúlunni með þessu roki til að sökkva í kaf!! Djö.... rok og leiðindi hérna.. þá kýs ég nú frekar að fá væna stórhríð og snjó í fjöllin hehe

Ég er að fara flytja í Arnarsíðu á næstu dögum - leggst bara vel í mig, styttra að fara í vinnuna og jah verð líka í góðum félagsskap.. langt síðan ég hef leigt með öðrum en mér hefur alltaf þótt það gaman híhí

Jólin koma ótrúlega bráðlega sem þýðir... jólafrí..jeminn hvað ég hlakka til!! Það er svo margt að gerast í desember sem er skemmtilegt.. ÉG er enn og aftur farin að hugsa mig um hvort mér takist að koma jólakortunum frá mér í ár.. en það hefur nú ekki tekist mjög vel hingað til, skrifa þau en síðan dregst það ótrúlega að koma þeim í póst...held að jólakveðja á Rás 1 sé frekar málið ;-) mér finnst það ótrúlega skondið og sniðugt.. kemur í ljós hvað gerist..

Best að fara flytja.....