Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Hamingjan..

Það er svo dásamlegt þegar fólk finnur sína réttu leið í lífinu! Ég á vin sem hefur fundið sína leið og það er svo frábært að heyra hvað allt breytist við það og verður skemmtilegt og spennandi. Klárt mál að flestum tekst þetta einhvern tíman á lífsleiðinni - það bara hlýtur að vera þar sem lífið er til þess að njóta þess!

...mikilvægast er að treysta á sjálfan sig og fylgja sínu innsæi, hvað öðrum finnst á ekki að skipta máli ef þú finnur hamingjuna lesandi góður, verða þeir sem í kringum þig eru að reyna að samgleðjast í stað þess að finna hnökra ef þá er að finna.. Rétta leiðin finnst ekki nema með því að feta ótroðnar slóðir. Það þýðir ekki að sitja heima í sófa og bíða eftir næsta sjónvarpsþætti eða fréttablaði og athuga hvort þar sé leiðarvísir - ó nei.. láta vaða!!!

Já gott fólk, þetta var hugmynd að því hvernig finna skal réttu leiðina í lífinu.

Góðar stundir..;-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home