Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Áfram Magni!!

fékk þetta í pósti... best að láta þetta bara hér híhí ég hef nú aldrei kosið hann en kannski ég geri það næst ;-)



Vinsamlega sendið áfram á alla á póstlistanum ykkar !!!!!!!!!!! Virkjum Íslendinga




Magna í úrslit 13. sep.






Sæl verið þið .


Málið er að nú er strákurinn "okkar" búin að vera 2 vikur í röð í einu af 3 neðstu sætunum þrátt fyrir frábæra frammistöðu, og það eru afar miklar líkur á því að verði hann þar 3ju vikuna sé þetta búið hjá honum. Við viljum öll hjálpa honum að komast lengra, helst í úrslitaþáttinn 13. sept.
Til að minnka líkurnar á því að hann verði sendur heim í næstu viku, verða allir þeir sem finnst "alveg frábært hvað honum gengur vel" en hafa aldrei gefið honum atkvæði sitt, og með því hjálpað honum, að taka á sig rögg og kjósa hann.

Atkvæðagreiðslan fer fram aðfaranótt miðvikudaga á milli klukkan 03 - 07 um morguninn. Næst verður kosið aðfaranótt 30. ágúst .

Nú er ekki hægt að búast við að fólk almennt vaki alla nóttina til að kjósa hann, en þeir sem á annaðborð vakna um 7 leitið til að fara í vinnu eða skóla, gætu, án þess að leggja mikið á sig, vaknað hálftíma jafnvel klukkutíma fyrr sest við tölvuna sína, á tæknilandinu Íslandi eru allflestir með tölvu og nettengingu, og kosið á http://rockstar.msn.com/ þar er hægt að kjósa eins oft og maður hefur úthald til og kostar ekki neitt.

Sérðu í anda íþróttaáhugamenn, sem hefðu tækifæri til að hjálpa landsliðinu í handbolta t.d. sleppa þvílíku tækifæri til að hjálpa þeim áleiðis !!!!!!!!!

Nú erum við Íslendingar vön að styðja heilshugar við bakið á okkar fólki sem er að gera það gott á alþjóðavettvangi - svo gott fólk - brettið upp ermar og hjálpið Magna til að komast í úrslitaþáttinn , nú ef það tekst ekki getum við ekki sagt að við höfum ekki reynt !!!!!!!!!!!!

Með baráttukveðjum
Magna aðdáandi

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home