Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

mánudagur, september 13, 2004

hóst hóst...

Veik heima....hversu dapurt er það??! Vá hvað þetta er leiðinlegt!! Full af kverkaskít... en fjandinn hafi það ég vinn mig úr þessu.
Annars er bara búið að vera rólegt hjá mér... skilaði mínu snilldar stærðfræðiverkefni á föstudaginn og lét það heita " Listin að kenna stærðfræði" heheheh finnst það ógeðslega fyndið tíhíhí
Kíkti nú samt út með Möggu á lau, þar sem við erum svo VIP og löbbum inn á alla staði bæjarins, sem er labbandi inn á amk, á þokkanum einum saman... og við skondruðumst fyrst á Kaffi Ak sem var ekkert svo sveitt í þetta skiptið en meatloaf-syrpan og grease og sama helv tónlistin klikkar nú ekki hehehe það er alveg með ólíkindum hvað það er alltaf sama tónlistin..missti reyndar af Skímó-syrpunni því við fórum í Sjallann á Vini vors og blóma... Þetta var mjög athyglisvert kvöld, við Magga skemmtum okkur konunglega við að vera tískulöggur og ef við hefðum rukkað fyrir sektir.... vá hvað ég væri rík í dag!!! Það virtist vera snípstutta pilsatískan sem rúlaði og helst að hafa shock-up sokkabuxurnar svo áberandi.. eða sko pilsið var svo stutt að það sást auðvitað í þrýstibúnað sokkabuxnanna!! Þetta er náttúrlega viðbjóður!! Jeminn eini það þyrfti að borga mér fúlgur fjár til að klæðast svona eins og drusla, svo voru þetta nánast eins og náttkjólar, og ljótir sko... ég myndi ekki einu sinni sofa í þessu!!
Hehe já en það var nú samt alveg ágætt í Sjallanum... kom á óvart VV&b held að ég hafi bara aldrei farið á ball með því bandi áður. Sunnudagurinn fór síðan í algjört afslappelsi og rólegheit.. var að laga til og svona þokkalega dugleg finnst mér.
En í dag er ég svo alveg eins og hreppatuska... helv...!!! Mér finnst það frekar leiðinlegt að hafa ekki komist í kennslu í dag... ég meina ef það skellur á verkfall... hver veit hvenær ég hitti snúllurnar mínar aftur?? Æi þetta er nú hálf sorglegt bara!!

Ætla að fara horfa á eitthvað skemmtilegt og láta mér batna....

2 Comments:

  • At 9:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ snúllan mín og velkomin aftur í bloggheiminnn!

    Til hamingju með stærðfræðina, ofsalega er ég hamingjusöm fyrir þína hönd.. það er svo mikill léttir að klára eitthvað sem hefur væbblast fyrir manni - ég fagna fyrir þína hönd!!

    knús og kossar Dóa

    p.s þú manst svo að kíkja ef þú átt leið í höfuðborgina!

     
  • At 12:28 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Tja mæja mín, ég man nú eftir að hafa farið með þér á VVogB hérna í 1924 þegar það var og hét. hehehhe ;)

    Kveðja Sigrún Á

     

Skrifa ummæli

<< Home