Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

þriðjudagur, júní 15, 2004

í sól og sumaryl...

Já það er nú meiri blíðan núna!! Vildi bara láta vita að ég er á lífi.. langt síðan ég var hér síðast. Nú ég er byrjuð á hótelinu, eitt sumarið enn, og það er bara góður fílingur í gangi, nóg að gera og stuð.
Um daginn byrjaði ég í söngkvartett sem ber nafnið Dalalæðurnar hehehe og það er alveg magnað.. erum einmitt að fara syngja á 17. jún á Dallas!! Jájá plötusamningurinn fer alveg að smella líka tíhíhí neeeei kannski ekki alveg en þetta er alveg helvíti gaman, enda góður félagsskapur, Helga Bryndís, Myriam, Íris og ég..alveg mögnuð grúppa - eitthvað annað en Nylon, ussssss þvílíkt og annað eins prump!! Jæja nóg af egóinu í dag hehehe
Ætla að skondrast í bæinn...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home