Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

miðvikudagur, júní 23, 2004

Jæja!

Er komin á fullt á Eddunni.. eins og venjulega hehehe og líkar bara ágætlega. Þarf að vinna eins og mofo í sumar og safna mér fyrir skíðaferð um áramótin og flugmiða til Spánar í brúðkaup í ágúst...bara verð að komast í það!!! Ætla bara að fara safna flöskum eða e-ð hehehe. Held að ég geti bara ekki sleppt þessu brúðkaupi, sérstaklega ekki eftir að ég fékk boðskortið..úff hvað mig langar en maður spyr sig, hvað skal gera?! Hef náttúrlega alls engin efni á því sko... vantar nokkra metra í að ná endum saman en því má redda með baggabandi úr sveitinni ehehehe reddast þetta ekki alltaf?

Dalalæðurnar eru búnar að troða upp í annað sinn, sungum á Dallas 17.jún og gekk svona þrusuvel. Gaman af því hehee

Hmm jæja kominn dvd tími... ekta veður til þess, mígandi rigning og snjóar meira að segja í fjöllin brrrrr

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home