Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

föstudagur, júlí 23, 2004

jeminn!! það er bara nýtt umhverfi hérna, greinilega langt síðan síðast!! Enda mjög upptekin í vinnu þessa dagana, bara svona eins og venjulega á sumrin ;-) Ég er samt í fríi um versló, amk 2 daga og hversu ljúft er það, ja maður spyr sig. Búin að plana frídagana núþegar, útilega með vinum mínum úr dalnum  í Mývatnssveit, hlakka mikið til þar sem ég hef í raun ekki hitt fólkið í sumar!! það er í rauninni sorglegt hvað maður sekkur sér í vinnu á sumrin og hittir lítið að vinum og kunningjum í staðinn en það er nú kannski svona þegar yfirdrátturinn virðist vera óyfirstíganlegur!! Iss maður eins og hann reddist ekki bara í ellinni?! 
well well mín ferðaplön hafa breyst allverulega.. er ekki að fara til Spánar í ágúst og fer í skíðaferð um páskana sem þýðir að ég er ekkert á leiðinni til útlanda á næstunni...nema ég skelli mér bara í einhverja helgarferð í haust..hvur veit..
Vildi bara gefa smá skýrslu hérna, er bara við sama heygarðshornið já eða næstum því hehehe tók mig til og sló garðinn í 2. skiptið í sumar og geri aðrir betur!!! En það má taka það fram að þessi svokallaði grasblettur hér í kring um húsið er nánast mosi þannig að það er ekki mjög mikið gras til að slá hehehe
Góða helgi nær og fjær...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home