Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

föstudagur, febrúar 06, 2004

Jæja komin helgi og ég að vakna til lífsins... mætti í skólann á náttfötunum í morgun hehehe til að skila verkefni og fór síðan beinustu leið heim í rúm aftur....vááááá hvað það var ljúft! Við Magga vorum að skilja við Dewey fyrir fullt og allt held ég, skrifuðum undir skilnaðinn um kl 03:00 í nótt og ég held að hans verði bara ekkert saknað hehehehe

Er að fara á þorrablót í kvöld í vinnunni.. fullt af bókaormum og skrifstofumúsum sem starfa innan veggja HA.. verður ábyggilega skondið og gaman - ég á reyndar eftir að kaupa mér til að borða þarna...10/11 reddar því á eftir ;-) Svo er það bara vinna á morgun og á sun ætla ég að reyna komast á skíði!!! Það er kominn svo geggjaður snjór og draumafæri.

Njótið lífsins..........

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home