Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

....hvað get ég sagt???? Þið sem lásuð Andrésblöðin ( eða gerið enn) kannist við það þegar Andrés eða aðrir snillingar í þeim blöðum þurftu að bölva.... það er einmitt þannig hjá mér núna!! Öll myndatáknin,STUNA,ANDVARP, HRMPF og bara allt sem til er!! Þessi blessaði skóli sem mér datt í hug að ganga í er ekki alveg að gera sig!!! Er sko ekki enn búin að fá leyfi til að nota þetta píanó sem ég er farin að halda að sé úr gulli og gimsteinum!! Ég er búin að sveiflast eins og jójó á milli manna og hvað er gert í málinu??? Nú það sama og venjulega.... EKKERT!!! Þetta er alveg með ólíkindum...ég er að fara taka lokapróf í mars en hef ekki aðgang að námsgögnum....stórsnjallt það hehehe þetta eru nú meiri strumparnir, ég meina það er nú ekki annað hægt en að brosa út í annað yfir þessu rugli!!!
Það verður kafli í ævisögunni um skólagöngu mína í HA tíhíhíhí ætla gefa hana út eftir 10 ár það ekki passlegur aldur til að gefa út svoleiðis fyrir jólin? Ja maður spyr sig!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home