Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

mánudagur, apríl 11, 2005

sjúbbísjúbb

Jæja mætt aftur... var nú reyndar búin að skrifa þessa fínustu ferðasögu síðan úr Ölpunum góðu en eitthvað hefur sú frásögn farið í felur :-/ hún kemur þá bara síðar..

Jájá María Scandali heiti ég annars... amk af og til eða stundum líka kennd við Bridget Jones.. jájá það verður líka bara að hafa það hehehehe einhverjir verða nú að lífga upp á hversdagsleikann. Skondraðist á Ungfrú Norðurland um helgina..var eitthvað sybbin svei mér þá og átti í stökustu vandræðum hehehehe en eftir smá hænublund var ég nú eldhress (ja miðað við aldur og fyrri störf amk)náði meira að segja að týna lyklunum mínum... jájá og bara á götunni. Ljósmyndafyrirsætan Lilja reddaði því nú þessi elska - er rosalega stolt af henni að hafa unnið sér inn myndavél og allt enda bjútíkvín!!

Klikk að gera í verkefnum og ég á síðasta snúning með það... ekkert nýtt hehe

En ég var að kenna Dorrit og Ólafi Ragnari á Marimba í dag !!! það hafa nú ekki allir fengið svoleiðis nemendur til sín hehehe þau stóðu sig bara vel hjónakornin :-) jájá opinber heimsókn þeirra á Ak í dag og á morgun.

Svo er það Töfraflautan á lau... endilega fjölmennið á þessa dúndursýningu !!!

1 Comments:

  • At 12:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Blessuð Mæja,
    Skellti mér á Hverfisbarinn um helgina og gettu hverjir voru þar fremstir í flokki??? Engir aðrir en Týrólabræður:o) kv. Tóta fljóta

     

Skrifa ummæli

<< Home