Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

sunnudagur, apríl 24, 2005

Battery full

Já nú er ég aldeilis búin að vinna upp svefnleysi síðustu vikur!! Svaf óendanlega lengi í gær, gat bara ekki vaknað.. en það var ljúft.

Dröslaðist nú samt til að ná í bílinn um 20:30 í gærkvöldi...nennti ekki fyrr. Já og til að fullkomna þetta allt þá pantaði ég mér sveitta pizzu og tók mér dvd mynd til að geta notið letinnar aðeins lengur heheh Vá hvað pizzur eru sveittur matur en góður á svona dögum!!

Í morgun skondraðist ég síðan með Lilju í messu kl 11:00. Fórum til að hlusta á Siggu og Michael syngja og það var bara fínt hjá þeim. Svo eru það tónleikar með Kristni Sigmunds og Jónasi Ingimundar í dag kl 15:00 Er ansi menningarleg þessa stundina hehehe En það er líka fínt finnst mér.

Ég er að fara í söngpróf e. 10 daga og þarf því að vera ansi dugleg að æfa mig!!! Þetta verður ansi strembið en vonandi gengur þetta upp.

Jammogjæja...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home