Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

föstudagur, febrúar 13, 2004

Er alveg gjörsamlegaheldurbeturogmiklumeiraenþað... orðin steikt í hausnum!!! Þetta hefur verið með erfiðari fæðingum.. (ekki það að ég sé margra barna móðir og hafi einhverja hugmynd um fæðingar hehehe) ..að skapa 100 orða úrdrátt úr einni helv.. heimspekigrein. Ja maður spyr sig - af hverju var þetta svona erfið fæðing þar sem greinin var áhugaverð og sæmilega skiljanleg... hmmmmmm sennilega ekkert annað en leti í huxaranum mínum heheheheh en einbeitinguna hefur nefnilega skort all nokkuð hér í kveld en það reddaðist þó því ég hef lokið við verkefnið!! já svei mér þá!
Það verður ljúft að komast í helgarfrí ef frí má kalla því ég verð á námskeiði alla helgina í tónó og í millitíðinni skrepp ég heim í öndvegi íslendskra dala á þorrablót og svo að syngja á tónleikum á sunnudaginn!! Dúdderídúúú... kominn tími til að leggjast á koddann

....Þarf nú endilega að fara koma nýju kommenta kerfi á síðuna.. bara upp á grínið

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home