Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

fimmtudagur, júní 05, 2003

Fjúff í dag er búinn að vera steikjandi hiti eða uþb 35 stig þegar heitast var!!! Það var nú bara erfitt að vera úti vegna hita eða amk ansi mikill sviti!! Þetta er nú samt betra en 6 gráðu hiti á Fróni... er barasta ekkert viss um að ég sé tilbúin í það að þurfa að fara klæða mig í vetrarklæðnað aftur eftir viku!! Þannig að það er nú eins gott að þetta fari að batnandi hehehe
Ég var annars að koma af línuskautum með Keisuke og Daníel, skruppum á Donauinsel og það var auðvitað frábært, við skautuðum í ca 2 tíma og í 28 stiga hita þannig að ég er vel klístruð tíhíhíhí en á leið í kalda sturtu fyrir svefninn.
Jæja ætla að drífa mig í sturtu.... ;-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home