Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

mánudagur, júní 02, 2003

Ja hérna hér...það er kominn júní!!!! Það þýðir að ég er á leiðinni heim eftir nokkra daga!! Hmmm það er pínu skrýtið að hugsa til þess... þar sem ég væri til í að vera lengur hér t.d. af því að þýskan er öll að koma, það vantar pínu meiri tíma til að æfa hana.. og líka vegna þess að það er svooooo gott að búa hér!! Ég held að ég eigi pottþétt eftir að koma hingað aftur til að vera um tíma.. amk vona ég það ;-)
Ég kem heim 12.júní og það er auðvitað tilhlökkun en samt á ég líka eftir að sakna Vínarborgar!! EN það er auðvitað alltaf gott að koma heim og hitta alla aftur ;-) Núna síðustu daga er svo mikið að gera.. mar þarf að skoða svo margt og svona lifa sig eins og túristi af og til hehehe og svo er líka málið að njóta síðustu daganna út í ystu.....
Ég sló samt algjört met í dag...skrifaði fullt af póstkortum, believe it or not, en þetta get ég eftir allt saman tíhíhí ;-) Ég er kannski ekki sú duglegasta í heimi að skrifa kort eða bréf ehehe en það má alltaf bæta sig..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home