Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

mánudagur, apríl 05, 2004

sveitasælan virkar!!!

Jámm það virkaði svona vel að skondrast inn í botn Svarfaðardals með fulla kassa af bókum og rauðvín til að skrifa lokaritgerðina, við gerðum alveg fullt. Ég er ekki frá því að haninn Jóakim hafi nú aðeins látið vita af sér þarna hehehe allskonar þrusk sem heyrðist en það var nú í lagi. Ég mæli sko með því að fólk skelli sér í stúdíoíbúðina á Skeiði til að vinna... það er alveg kjörið!!
Í gær tæklaði ég síðan heilar fjórar fermingarveislur og guð minn góður hvað ég borðaði mikið af allskonar kökum og gúmmelaði..held að ég þurfi nú laglega að fara huga að hreyfingu!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home