Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

föstudagur, mars 26, 2004

Jæja...

Nú er að skondra þessu verkefni af og fara síðan að í smá píanóskrans...stutt í próf og svona. Sit heima að reyna einbeita mér en gengur svona lalaaa, nenni ekki þessu blessaða verkefni hehehe komin með leið á því!!! En það verður víst að klárast til að ég komist í píanógírinn sem allra fyrst því prófið er á mánudag og minns að skondrast suður annað kvöld til að fara í fermingu á sunnudaginn. Það verður nú fínt þegar ég verð búin í þessum prófum á þriðjudaginn...fjúff mar þá fær mar sér nú rauðvínsglas eða e-ð!!
Hey datt svona líka í lukkupottinn í gær!! Haldiði að það hafi ekki verið bakkað á aumingjans Pólóinn minn og greyið beyglaðist meira en það sem ég beyglaði um daginn sko!! Þannig að nú fæ ég allt bætt án þess að borga krónu ;-þ hehehe og er ekkert annað en MJÖG ÁNÆGÐ yfir því.. skondra djásninu mínu á verkstæði bara sem fyrst!!
það snjóar bara hérna núna, ekta svona göngutúraveður eða vídeóveður..liggja upp í sófa og glápa á vídeó og gera ekki neitt.....dísús maður ég held að ég sé að beila á þessu...komin með letiveikina!! eeeeeeeen það gengur ekki, tónó bíður, klára þetta verkefni í kvellan!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home