Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

mánudagur, nóvember 14, 2005

mjájá

Eg fæ reglulega gest til mín inn um gluggann, gulan ferfætling sem heitir Tumi..hann treður sér inn til mín í gegnum rimlagardínurnar og vælir á meðan.. eru kettir þrjóskari en allt??

Allnokkuð hefur drifið á daga mína síðan síðast.. ekkert sorglegt, allt meira skemmtilegt en hitt sem þýðir að ég hlýt að vera í góðum gír í skammdeginu. Það hefur nefnilega borið svolítið á því að fólk er að spyrja félaga sína "hvernig hefur þú það núna í myrkum nóvember?" Piff hvað er að? eins og það sé einhver stimpill á vetrarmánuði að vera neikvæður og þunglyndur?! Já nei takk!! Ef svo er þá hlýtur að vera erfiðara en ella að vera þunglyndur.. tjah nóg um það, held að ég sé ekkert í áhættuhópi, á meðan ég sé mér fært að fara á fætur á morgnana með svefndrukkið bros á vör þá er þetta í lagi.

Mér finnst dásamlegt að komast á skíði svona snemma í vetur, það er svo ótrúlega gaman að fara í fjallið og láta sig sjúbba niður og anda að sér fjallaloftinu. Þó jafnast auðvitað ekkert á við að vera á ALVÖRU skíðasvæði eins og í ölpunum en ég kvarta þó ekki, er hvort sem er á leiðinni í febrúar til Sölden í Austurríki þannig að ég er ekkert annað en sátt. Þegar ég var erasmus í Vínarborg fór ég á skíðanámskeið og lauk því með diplomu sem skíðakennari... jájá er nú ekki búin að kenna mikið á skíði en var þó aðeins að reyna á kennsluhæfileika mína í þeim efnum um daginn og hvað?? Die Schilehrerin Scandali er ekki alveg að standa sig þar sem nemandi minn datt og fótbrotnaði!!! hmmmm ég er kannski ekki á réttri hillu sem skíðakennari enda ekki mikið í þeim geira. Nemandi minn kemur nú kannski einhvern tíman aftur á skíðin en fyrst þurfa að líða 6 vikur í gifsi ( vúúúúúúps!!!!) við kannski skellum okkur á gönguskíði næst hehehe

Hvað skal gera næsta vetur? þessi spurning dynur á mér þessa dagana... ætla ég að vera hér áfram eða á að fara í framhaldsnám erlendis eða.... Allt á það eftir að koma í ljós, það er bara spurning um að njóta lífsins hvar sem maður er!!!

6 Comments:

  • At 4:30 e.h., Blogger Dóa said…

    Alveg sammála þér um þessar vangaveltur um næsta vetur.. hvað skal gera??

    Hvernig líst þér á að koma bara með mér til Spánar í framhaldsnám?? Í kuldanum í höfuðborginni virðist það vera besti (og jafnvel eini) kosturinn í stöðunni!

    knús og kossar :)

     
  • At 7:27 e.h., Blogger Mæja said…

    Spánn já?? Tjah það er allt opið hjá mér ;-) hef verið að skoða ýmislegt og allt opið ennþá.. þú ætlar semsagt beint í framhaldsnám? Dugnaðurinn í þér..

    Knúsíknús

     
  • At 10:32 e.h., Blogger Grétar Orri said…

    Hehehe... ekki er þetta sami köttur og leit við í sumar?

     
  • At 2:40 e.h., Blogger Mæja said…

    jújú þetta er gula helvítið.. hann var að reyna að brjótast inn til mín í nótt.. lét hann nú aldeilis hafa það, tímdi þó ekki vodka á hann eins og Nóri gerði forðum við köttinn á hótelinu..

     
  • At 3:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gott að þú ert í þrusugír kona, enda lítur nú varla út fyrir annað fyrst glottið er á sínum stað svona af og til!

    Tilraunir okkar til djamms...veit ekki alveg með að mæta í ókunnug partý...einhvernvegin endar þetta allt saman í orgíu og við horfum á, eru það við eða þau sem eru perrar?!? Ja maður hreinlega spyr sig.

    Lilja óperujúss

     
  • At 4:12 e.h., Blogger addibinni said…

    Koddu til Köben næsta ár. Alltaf ógeslega gaman, það var sumar hér fram í oktober og hér eyðir maður þunglyndi með bjór drykkju. Meget sjovt. Hvað er annars að frétta af skíðanemanum lappalausa?

     

Skrifa ummæli

<< Home