Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

sunnudagur, október 30, 2005

scandali er mætt aftur

Já það er ótrúlegt hvað það er hægt að gera ekki neitt, hrikalega þægilegt að eiga svoleiðis daga... svona inn á milli, myndi nú ekki nenna því til lengdar hehe þá er hætt við þunglyndi held ég. Scandali þarf ekki að óttast það tíhí amk vil ég biðja fólk að banka í mig ef ég stefni á þær slóðir ;-)

Ég hef átt alveg ágætis helgi staffapartý á föstudag og skroppið á Karó í gær. Síðan er ég búin að bóka mig í skíðaferð í febrúar til Austurríkis, Sölden... vííííí hlakka svakalega mikið til, svo mikið að það er eins og jólin komi aftur í febrúar!!
Aldeilis verður mín flott á brettinu, jamm ætla að skondrast á bretti hehe og ætla að æfa mig mikið hér í fjallinu, hér snjóar vel og hlýtur að fara opna fljótlega þannig að ég get sjúbbað niður hlíðarnar í góðum gír!

jamm og jæja, er að fara á vit ævintýranna með Zorro í Borgarbíói..

2 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home