Halló halló halló!!

"Það var sagt að það væri show!!!"

laugardagur, október 08, 2005

;-=

jæja blogger spogger..

Fullt að gera í kennslunni og er meira segja komin í aukakennslu með leikskólabörnum í tónlist og það er bara æðislegt!! Þau eru svo miklar dúllur, þessi sætu börn... hvað er þetta, einhver eggjahljóð?? neinei ekkert frekar, enda eignast ég ekki barn einsömul ehehehehe. Segi svona því margir virðast hafa áhyggjur af þessu, enginn maður og ekkert barn hjá mér !! Skemmti mér bara yfir því, þetta hlýtur að koma eins og annað í lífinu og ef ég verð ekki gift með börn og buru um 40 þá kannski er tímabært að fá smá deperisma og gera hvað sem er til að bjarga þessu, en núna.... í guðanna bænum ekki örvænta gott fólk!

Hef verið að horfa á leitina miklu að íslenska bachelornum, sem mínir elskulegu vinir skráðu mig í en ég hafnaði.... sem betur fer ! Ekki bara að ég kannast við bachelorinn sjálfann, en þá er þetta bara svo fáránlegt og ekki kannski alveg besta fyrirmynd sem hægt er að senda unga fólkinu í dag... þetta er saklaust núna en hvernig verða næstu þættir? hvað munu margar gellur kyssa gaurinn í næsta þætti?? Nei svona í alvöru þetta þarf svolítið að passa..
Samt er hið mesta skemmtiefni að horfa á!!

jæja gott fólk, ég á víst eftir að setja x í reit í sameiningarkosningum - Lifi Svarfdælingar!!!

4 Comments:

  • At 2:23 e.h., Blogger Grétar Orri said…

    Jæja, nú verðum við að fara hóa saman Eddu liðinu hérna fyrir norðan og sletta úr klaufunum aðeins! Hitti Ástu á Bautanum nú um daginn og hún tók vel í þessa hugmynd!

    Stay in touch ;-)

     
  • At 5:58 e.h., Blogger addibinni said…

    Halló halló. Ég græt ennþá þá stund er þú lést tækifæri lífs þíns þér úr greipum renna til þess eins að taka skít frá illa uppöldum krakka ormum. Kommon, nú værir þú full á launum í einhverju svaka dressi frá 17 að reyna fá smá action. Hvað þarf meira ég spyr? p.s. einn öl(á mann) fyrir mig ef þið Eddu liðið hittist! kv. úr Tuborg.

     
  • At 10:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hehe Mæja, glötuð tækifæri glötuð tækifæri. Varstu rauðsokka í dag? Til hamingju með daginn elllskan. Sé þig ;)

    Lilja

     
  • At 7:14 e.h., Blogger Mæja said…

    jú klárlega þarf edduliðið að fara tjútta og svo sannarlega verður einn öl drukkinn fyrir þig Nóri minn!!
    Mér finnst mjög gaman að horfa bara á þessar aumingjans stúlkur sem eru að gera stóóóóran skandal að ég María Scandali hefði ekki höndlað þetta í mínu starfi.... úff sé fyrir mér nemendur að segja " hey sá þig í sjónvarpinu í gær" hmmmm nei held ekki hehehe

     

Skrifa ummæli

<< Home